Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Könnun

Ætlar þú að kíkja í heimsókn til okkar ?

Fyrir þyrsta aðdáendur..

24. apríl 2007 klukkan 02:27
Blikar dottnir út úr Lengjubikar fyir Víking, alls ekki gott en það er sumarið sem skiptir máli og það vita allir.
Fengum heimsókn frá Ítalíu og SWU um helgina sem er ávísun á rándýrt prógram. Ég og Risinn byrjuðum að marinera okkur á hádegi á Föstudeginum þar sem sólin skein og lífið blasti við okkur. Miyako um kvöldið sem klikkar seint. Partý in the mansion, solid partý, ekkert besta partí hérna hja okkur en stóð fyrir sinu.
Á laugardeginum var kíkt aðeins á tanið meðan siggi og halli skelltu sér á kappakstur, ekki halda að þeir séu orðnir einhverjir brutal fans þetta var bara skólatengt hjá þeim. Fengu dýrmæt stig i lokabaráttunni fyrir prófin. Pizza um kvöldið og white russian um kvöldið, The Dude hefði ekki sætt sig við blönduna sem við vorum að splæsa í en hún var samt drekkanleg. Sátum að sumbli fram eftir kvöldi og svo var haldið í háttinn.
Ég og Halli skelltum okkur svo á The Killers í Atlanta á Sunnudagskvöldinu og má segja að þeir hafi verið magnaðir i einu orði sagt..Tóku alla helstu slagarana og allt varð vitlaust þegar þeir tóku Mr. Brightside!
NBA playoffs byrjað þannig þið vitið hvar mig verður að finna næstu vikurnar..
Þannig mamma ég veit þú lest þetta, eins gott að Sportpakkinn verði kominn þegar ég kem heim..:)
Bara svona smá update hvað er i gangi herna hja okkur, erum slakir bloggarar þvi við nennum ekki að blogga eins og staðan er i dag..Þannig ekki koma með comment: Hei, er siðan ykkar dauð eða Hvað á ekkert að fara að blogga?
Þangað til næst ást og virðing
GrASsi

11.mars - 18.mars

21. mars 2007 klukkan 04:18
  • Akon Live
  • Karaoke
  • Wet N´ Wild
  • Club de Vila
  • Heat vs Kings
  • Strönd
  • Goðir Skemmtistaðir
  • Afslöppun
  • Tan
  • Ísland á laugardag
  • Hrikalega slappir bloggarar
  • GG

Jude Law á Íslandi

19. febrúar 2007 klukkan 02:49

Komiði Sæl
Lífið hér í MGM, AL gengur sinn vanagang. Urðum reyndar fyrir smá áfalli fyrr í mánuðinum þegar Jo Hreiðarss ákvað að yfirgefa okkur, þar sem hann sá ekki hag sínum borgið í að vera áfram hér í MGM og halda heim til sinnar heittelskuðu. Við viljum koma þökkum til Jóa fyrir alla hjálpina sem hann hefur veitt okkur síðam við komum hingað út. Sitjum núna í makindum okkar að horfa á NBA All Star leikinn, þar sem WEST-rið er lið Hússins með DK 41 i broddi fylkingar.
Sá að Blikar sigruðu Eyjamenn í dag 5-3 þar sem Kiddi S reimaði á sig spariskóna og klíndi einum i þaknetið. Glæsilegt það hjá Kidda og Blikum.
Mál málanna í dag virðist vera fyllerí Liverpool manna á Algarve. Algarve er bær þar sem fólk á það til að sleppa aðeins dýrinu í sér en það er orðið soldið hart að fá golfkylfu í sköflunginn fyrir að vilja ekki grípa í mæk. En ég vil nú meina að Bellamy hafi verið að gera þetta til að hrista aðeins upp í John Arne þar sem spilamennska hans hefur ekki verið upp á marga fiska, kannski rétt nokkur hornsíli (Gór).
Kveðja til fallega fólksins á Íslandi
Þremenningarnir

Rándýr klipping..

22. janúar 2007 klukkan 05:42
Kominn timi a að henda einhverju herna inn..
Byrjum aðeins á New York, glæsileg borg i alla staði og ótrúlegt hvernig það er hægt að reisa öll þessi háhýsi á svona ''litlu'' plássi. Skoðuðum ground zero, droppuðum við i china town, empire state og fleira. Halli er með svo rándýra klippingu að hann þurfti að borga toll af henni en slapp við yfirvigt. Myndir frá NY koma inn við tækifæri.
En þá að helginni sem er ekki i frásögur færandi nema að við forum 9 islendingar asamt 1 bandaríkjamanni (Nýi meðleigandinn) ut að borða i gær a nyjan japanskan stað þar sem er eldað fyrir framan mann. Faum þennan skrautlega kokk sem heitir Jimmy allt i goðu með það. Þar sem Kári og Risinn voru komnir vel i glas við mætingu leiddi ýmislegt af öðru. Þegar a leið var Jimmy byrjaður að taka undir með : ,, Hei Jimmy you´re so fine, you´re so fine you blow my mind hei Jimmy, hei Jimmy. Þar sem Risinn er svo mikill fagmaður bauð hann Jimmy upp a rauðvinsglas svo hann gæti skalað með okkur hinum. Jimmy akvað að slatra þvi a nyju evropumeti innanhuss, byrjaði að tromma a eldusahöldin og tralla með okkur hinum sem leiddi af ser 3 rauðvinglös i viðbót handa Jimmy og sí-skammir fra yfirmanni sinum fyrir að vera með þessi læti.BTW voru svona 50 manns þarna inni og held eg að þeim hafi ekki verið skemmt. Spurning hvort Jimmy litli se atvinnulaus i dag??
Grand slam helgi lokið á Englandi og var ég sáttur við mina menn i gær, solid gegn meisturunum.
Ekki sáttur hins vegar með Ísland, Úkraínumenn geta bara farið og látið taka til í bílskúrnum hjá sér komist þeir áfram á morgun. Sendi Íslendingum baráttukveðjur gegn Frökkum á morgun og hef eg mikla tru a þeim.
GG

Kemur færsla þegar kemur veður gott.

20. janúar 2007 klukkan 09:49
sdf

Gleðileg jól!!

25. desember 2006 klukkan 21:52
Verðum í fríi þar til við förum aftur út þann 14.jan..
Mætum með nýja cameru og nýja videotökuvél þannig eftir áramót þannig stay tuned!!
GG

Til í Ísland????? Þá erum við bara mættir

15. desember 2006 klukkan 05:33
Búinn að pakka, búinn i prófum, búinn að borða. Sit núna i tölvunni meðan Siggi og Halli eiga að vera að 'læra fyrir seinasta profið sitt i kvöld. Eigum flug frá Atlanta til New York eftir 13 klukkutima og svo flug frá New York til Keflavik airport annað kvöld sem þýðir að við verðum komnir, að öllu óbreyttu á laugarsmorgunn til Íslands. Veit að elskurnar minar aka vinirnir okkar heima eru að plana woodstock reunion á Celtic Cross á laugardagskvöldið. Skál fyrir þeim og lífinu.
Risinn er að horfa á sjónvarpið með fæturna upp i loft og er að hvíla sig eftir erfiðar æfingar undanfarið.
HH er að borða pizzu frá subway sem eru bestu pizzurnar her i MGM, AL
Siggi er i inniskonum hans Ranna að skrifa comment..
Ranni er að ''stússast''
Ég er að drekka Gatorade Rain.
Veit ég fæ ekkert Edduna fyrir þetta handrit enda var það ekki tilgangurinn með þessari færslu heldur bara að láta ykkur vita hver staðan er a okkur herna..
Þið sem eruð ennþa i prófum í HÍ, gangi ykkur vel og megi guð og lukka vera með ykkur.
GG út

Myspace er tímaþjófur

12. desember 2006 klukkan 02:34
Við félagarnir vorum bara í góðu tjilli að reyn að læra undir próf hérna um helgina og þá kemur hann grassi g með þessar snildar hugmynd,"skráið ykkur á myspace strákar". Það endaði þannig að við erum alliir orðnir myspace lúðar og gerum fátt annað en að heilsa upp á hina lúðana á myspace. Maður gleymir sér allveg í að gera akkurat ekki neitt. Hættulegur andskoti í miðjum prófum. En ég og halli pökkuðum ensku prófinu saman i morgun og eru bara 3 kvikindi eftir hjá mér.
Svo var ég að heyra að okkar heitt elskuðu vinir væru að plana party fyrir okkur þegar við komum heim þann 16 þannig að takið daginn frá. Meira um það seinna ef það verður staðfest.

En þangað til næst
sjonni kaldi kveður

www.myspace.com/siggi_sorensen

www.myspace.com/grassig
www.myspace.com/tilikallinn
www.myspace.com/ranniboy

Concert report!!

08. desember 2006 klukkan 01:17
Tenacious D stóðu fyrir sínu á þriðjudaginn og mæli ég með tónleikum með þeim félögum. Þeir voru með stanslaust show og Jack Black er endalaust fyndinn. Þeir tóku held ég öll lög sem þeir hafa samið og það stóð uppúr þegar þeir tóku "fuck her gently" og tribute. Svo fengu þeir hjálp frá Anti krist sem var á gítar, Chaplin var á bassa og KFC kallinn var á trommum. En þetta eru allt gaurar sem þeir hittu í helvíti.


En annars erum við bara nettir þéttir góðir. Erum að slutta skólanum og eru bara 3 próf eftir í næstu viku og svo heimferðinn. Helginn verður líklega í rólegri kantinum og afslökun verður í fyrirrúmi.
En ég var að frétta að góð vinur okkar hann haukur væri eitthvað búin að bæta á sig, mér finnst hann vera full snemma í því að fá sér velgengis bumbu. En sagan segir að hann sé búin að bæta á sig en er samt ekki enþá orðin krissa feitur einsog það var orðað. Spurning um að taka þá félaga í körfu í jólafríinu því það er fátt skemtilegra en að pakka Krissa saman í körfu.

Newcastle eru á þokkalegu rönni þessa dagana og eru enþá ósigraðir í evrópu og eru að hala in stigunum í deildinni eftir slaka byrjun. Spennandi tímar framundan á heilaga james.......

klassik

ákvað að setja eina klassíska mynd hérna inn, halli virkilega svalur með kókaín lúkkið og gunnir með gredduna og haukur í nettu rokki

TENACIOUS D

05. desember 2006 klukkan 03:41

Vildi bara deila því með ykkur að ég og Halli erum að fara á tónleika í atlanta á morgun með tenacious D.
Fucking rocking and fucking rollin.....................
T D
Fuck her gently klárlega besta lag sem samið hefur verið.